
Eiríkur Jónsson og Jakobína Jónsdóttir Mynd WtW
Eiríkur Jónsson fæddist 2. apríl, 1863 í N. Múlasýslu. Dáinn 9. júní, 1954. Hallson vestra
Maki: 1) Jórunn Þorsteinsdóttir f. 1. janúar, 1866, d. 8. maí, 1906. 2) Ingibjörg Jónsdóttir d. 1918 3) Jakobína Svanhildur Jónsdóttir. Jórunn var systir Jóhanns, landnámsmanns í Lundarbyggð. Ingibjörg og Jakobína voru systur.
Börn: Með Jórunni 1. Guðrún f. 1886 2. Ingibjörg (Bogga) 3. Björn f. 1893, d. 1924 4. Steinunn f. 3. maí, 1894 5. Rose 6. Guðjón. Með Ingibjörgu: 1. Eirikka 2. Haraldur (Harald) 3. Björg 4. Jakobína. Með Jakobínu 1. Ingi Björgvin 2. Halldór. Jakobína átti fyrir son, John Robert.
Eiríkur og Jórunn fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888. Þar voru þau fyrst um sinn en fluttu árið 1893 í Lundarbyggð.
