ID: 13178
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1948
Guðmundur Jónsson fæddist 16. júlí, 1862 í N. Múlasýslu. Dáinn í Lundarbyggð 1948. Austfjord vestra.
Maki: 1) Jóhanna Sigurðardóttir f. 1866 í N. Múlasýslu, d. í Lundarbyggð árið 1896. 2) Guðfríður Pétursdóttir f. í Hnappadalssýslu árið 1857.
Börn: Með Jóhönnu 1. Katrín f. 1890 2. Stefán Björn f. 1892 3. Jóhannes f. 1894 4. Kristín f. 1896.
Þau fluttu vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1892 og til Björns, bróður Guðmundar sem bjó í Lundarbyggð. Fóru þaðan í Geysirbyggð í Nýja Íslandi en sneru aftur í Lundarbyggð árið 1897. Guðmundur flutti vestur að Kyrrahafi og bjó Í Oregon til ársins 1917. Þá flutti hann og Guðfríður til Manitoba og námu land í Lundarbyggð.
