Guðríður Gísladóttir

ID: 7084
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1839
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1918

Guðríður Gísladóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 8. febrúar, 1839. Dáin í Winnipeg 17. nóvember, 1918.

Maki: 6. nóvember, 1861  Friðrik Sigurður Stefánsson f. 31. ágúst, 1840. Þau skildu.

Börn: 1. Sigurbjörg f. 20. september, 1862, d. í Elfros, Saskatchewan árið 1946 2. Jón 3. Friðrik f. 26. júlí, 1869 (Stephenson vestra) d. 1938.

Guðríður var samferða Jóhanni Briem á Völlum í Skagafirði vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876. Hún fór í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi sama ár og veiktist um haustið í bólusóttinni en sonur hennar Friðrik slapp. Guðríður náði sér og eftir nokkur ár í Nýja Íslandi flutti hún suður í Hallsonbyggð í N. Dakota þar sem þau voru einhvern tíma. Fluttu þaðan norður til Winnipeg þar sem hún og Friðrik komu ár sinni fyrir borð.