Jón Metúsalemsson

ID: 12524
Fæðingarár : 1843
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Kortið sýnir svæðið við norðanvert Manitobavatn. Hér kom Jón Metúsalemsson sér fyrir með fjölskyldu sína um aldamótin 1900.

Stefanía Stefánsdóttir Mynd VÍÆ V

Jón Metúsalemsson Mynd VÍÆ V

Jón Metúsalemsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1843. Mathews vestra.

Maki: Stefanía Stefánsdóttir f. 1845 í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Aðalbjörg f. 1870 2. Björn f. 1872 3. Sigurður f. 1876 4. Jón f. 1877 5. Metúsalem f. 1885 6. Ragnhildur f. 1887. Bræðurnir Sigurður og Jón drukknuðu í Manitobavatni 3. maí, 1901.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og námu land í Lundarbyggð. Bjuggu þar einhver ár en fluttu svo norður í Narrows árið 1893 þar sem þau voru í tvö ár. Fóru þaðan í Siglunesbyggð sem var hans byggð til æviloka en um tíma hafði hann þá reglu að flytja vestur yfir Manitobavatn til Kinosota svo börn hans gætu gengið í skóla.