Kristján Benediktsson

ID: 7030
Fæðingarár : 1876
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Kristján Benediktsson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1876. Benedictson vestra.

Maki: Kona af kanadískum ættum.

Börn: upplýsingar vantar.

Kristján flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og fór fljótlega til Glenboro. Þar vann hann sem búðarþjónn en réðst svo í að opna nýja verslun þar í bæ í samfélagi við annan mann. Verslun sú brann árið 1905 og flutti Kristján þá til Dauphin í Manitoba þar sem hann við verslunarstörf. Flutti seinnma þaðan til Winnipeg og hélt áfram verslunarstörfum.