Magnús Th Paulson

ID: 20698
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1911
Fæðingarstaður : Manitoba

Magnús Theodore Paulson Mynd VÍÆ V

Magnús Theodore Paulson fæddist í Winnipeg 30. júní, 1911.

Maki: 30. júní, 1937 Lillian McLeod f. í Winnipeg, skoskur uppruni.

Börn: 1. Stephanie 2. Signý 3. Magnús 4. Thór. Öll búsett í Ontario.

Magnús var sonur Friðriks Þórðarsonar og  Guðrúnar Lárusdóttur. Friðrik skrifaði sig vestra Bjarnason því hann var kjörsonur séra Jóns Bjarnasonar og konu hans Láru. Hún var föðursystir Friðriks. Magnús var alinn upp hjá móðusystur sinni, Guðnýju og hennar manni Magnúsi Paulson í Winnipeg. Magnús Theodore lauk prófi frá Jóns Bjarnasonar skóla í Winnipeg árið 1927 og innritaðist í University of Manitoba í borginni. Hann lauk þaðan prófi í raunvísinfum árið 1931. Árið 1935 flutti Magnús til Toronto þar sem hann seldi fasteignir og gerðist byggingaverktaki.