María Metúsalemsdóttir

ID: 10683
Fæðingarár : 1881
Dánarár : 1949

María Metúsalemsdóttir fæddist á Langanesi 6. júní, 1881. Dáin í N. Dakota 27. nóvember, 1949.

Maki: Haraldur Ólafsson f. á Akureyri 24. ágúst, 1884.

Börn: 1. Einar f. 6. febrúar, 1921 2. Helga f. 16. janúar, 1923. Ólu upp þrjú fósturbörn, Harald, Einar og Kristínu Einarsson.

María var dóttir Mathúsalems Einarssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur er vestur fluttu árið 1883. Haraldur var eitt ár við kjötiðnaðarnám í Kaupmannahöfn og vann við það alla ævi. Fyrst í verslun Knudsen á Akureyri, þá þrjú ár 1919-1922 í Wynyard í Saskatchewan og átti síðan og rek eigin kjötverslun í Mountain, N. Dakota. Þar stundaði hann líka landbúnað sem hann hætti svo árið 1946. Sat í bæjarstjórn Mountain um tíma og var virkur í félagsmálum landa sinna í N. Dakota.