Sigrún Björnsdóttir

ID: 12885
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Sigrún Björnsdóttir fæddist árið 1860 í N. Múlasýslu. Hogan vestra.

Maki: 1880 Lars Hogan, af norskum ættum, f. 14. desember, 1855 í Noregi. Dáinn í Saskatchewan 1915.

Börn: 1. Martha d. 1909 2. Paul George 3. Ólafur Carl 4. Anna 5. Clara 6. Jónína Margrét 7. Elizabet 8. Alma

Sigrún fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum og systkinum. Þau fóru til Nýja Íslands en fluttu svo þaðan til N. Dakota og nam Björn land í svonefndum Pembinafjöllum.  Þar var Lars Hogan kominn og hófu þau Sigrún búskap á landi hans þar ekki svo langt frá Milton. Þar bjuggu þau í 22 ár en 1904 fluttu þau í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land norður af Leslie.