ID: 10696
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1925

Þorlákur Einarsson og Steinunn Þorbergsdóttir Mynd WtW
Þorlákur Einarsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1861. Dáinn í Lundarbyggð árið 1925. Thorlakur (Peter) Eirickson vestra.
Maki: Steinunn Þorbergsdóttir f. 1869 í S. Múlasýslu, d. 1960 í Lundar.
Börn: 1. Alice 2. Arthur 3. Sigríður 4. Ernest 5. Þorbergur 6. Einar 7. Guðrún Alma.
Þorlákur fór einsamall vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883. Steinunn hafði flutt vestur þangað með móður sinni, ekkjunni Sigríði Sigurðardóttur árið 1878. Þau bjuggu fyrst um sinn í borginni en fluttu norður í Lundarbyggð árið 1888, færðu sig til í byggðinni 1890 og námu annað land. Fluttu enn á annað land árið 1917 og þar lést Þorlákur. Steinunn bjó áfram þar til ársins 1931 en fluttu þá til Lundar.
