Sigmundur J Jónsson

ID: 20024
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1917
Fæðingarstaður : Nýja Ísland

Sigmundur Joseph Jónsson Mynd Gilbert Funeral Home

Sigmundur Joseph Jónsson fæddist í Nýja Íslandi 29. desember, 1917.  Dáinn 15. desember, 2016.  Simbi Johnson vestra.

Maki: 22. ágúst, 1949 Florence Guðrún Kristine Rockett.

Börn: 1. Jónína Catherine f. 6. maí, 1954 2. William R Jón f. 31. desember, 1959.

Sigmundur var sonur Jóns Björnssonar og Jósefbínu Jósefsdóttur landnema í Nýja Íslandi árið 1902. Hann gegg í skóla á Gimli, innritaðist í landbúnaðardeild Manitobaháskóla í Winnipeg, lauk þaðan prófi og vann við búskap með föður sínum. Lærði smjörgerð og vann við það í mörg ár hjá Riverton Creamery og var forstjóri þar. Florence var dóttir William Rockett og Jónínu Solveigar Björnsdóttur í Riverton.