Sölvi Sveinsson

ID: 6808
Fæðingarár : 1878
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1927

Sölvi Sveinsson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1878. Dáinn í Kaliforníu 1927. Solvy Solvason vestra.

Ókvæntur og barnlaus.

Hann fór vestur um haf til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Sveini Sölvasyni og Moníku Jónsdóttur árið 1887. Þaðan lá leið til N. Dakota árið 1890 en eftir nokkur ár settust hann að í Selkirk í Manitoba. Sölvi nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan um líkt leyti og Sveinn bróðir hans árið 1907 en hann seldi það seinna. Flutti árið 1918 til Winnipeg en fór þaðan til Kaliforníu stuttu seinna.