Sigrún V Þorsteinsdóttir

ID: 20057
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1891

Sigrún Vilfríður Þorsteinsdóttir Mynd VÍÆ II

Sigrún Vilfríður Þorsteinsdóttir fæddist í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi 16. júní, 1891.

Maki: 1) 23. nóvember, 1914 Stefán Guðmundur Þorsteinsson f. í N. Þingeyjarsýslu árið 1874. Dáinn í Manitoba 1. mars, 1921. 2) 6. desember, 1941 Emil Þorsteinsson f. í Cypress River í Manitoba 18. febrúar, 1889.

Börn: Með Stefáni 1. Lilja f. 23. júlí, 1915 2.  Vilbert f. 23. júlí, 1915, tvíburi 3. Þorsteinn f. 29. mars, 1917 4. Guðrún f. 14. júlí, 1920.

Stefán var sonur Þorsteins Jónssonar og Guðrúnar Bjarnadóttur, sem vestur fluttu árið 1879 og settust að í Nýja Íslandi. Fluttu þaðan árið 1881 í Argylebyggð í Manitoba.  Stefán ólst þar upp og gerðist bóndi í Cypress River (Brúarbyggð) í Manitoba. Sigrún var dóttir Þorsteins Eyjólfssonar og Lilju Hallsdóttur sem bjuggu í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi.