Elín Bjarnadóttir fæddist 20. nóvember, 1903 í Winnipeg.
Maki: 22. nóvember, 1926 í Seattle Þorsteinn Guðmundsson fæddist í Borgarfjarðarsýslu 29. febrúar, 1884. Þorsteinn G. Goodman vestra.
Barn: 1. Guðrún Hope f. í Seattle 16. október, 1927.
Elín var dóttir Bjarna Guðmundssonar og Ingibjargar Jónsdóttur sem vestur fluttu upp úr aldamótum 1900. Hún ólst upp hjá þeim nærri Foam Lake í Vatnabyggð í Saskatchewan en fór þaðan með þeim vestur að Kyrrahafi. Þorsteinn fór til Vesturheims árið 1900 með foreldrum sínum, Guðmundi Torfasyni og Guðrúnu Þorsteinsdóttur. Þau settust að í Grunnavatnsbyggð í Manitoba þar sem Þorsteinn bjó til ársins 1920. Fór til Winnipeg en flutti vestur til Seattle í Washington árið 1924. Elín og Þorsteinn fluttu til Kaliforníu árið 1930 og bjuggu í Los Angeles til ársins 1954. Eftir það í Belmont.
