Ragnar S Ólafsson

ID: 6934
Fæðingarár : 1882
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1951

Ragnar Sigurður Ólafsson fæddist 18, mars, 1882 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Brownbyggð árið 1951. Sigurður R. Ólafsson og Siggi Olafson vestra.

Maki: 15. apríl 1919 Anna Sigurbjörg Helgadóttir d. 1946.

Börn: 1. Ragnar f. 1920 2. Albert f. 1921 3. Joe f. 1922 4. Sigurður (Siggi) f. 1924 5. Grace f. 1926 6. Lára (Laura) f. 1927 7. Jón (John) f. 1928 8. Bill f. 1930.

Ragnar fór vestur árið 1877 með foreldrum sínum, Ólafi Árnasyni og Ragnheiði Ósk Sigurðardóttur. Þau settust að í Akrabyggð í N. Dakota og bjuggu þar til ársins 1899, fluttu þá í Brownbyggð í Manitoba. Anna var dóttir Helga Jónssonar og Guðrúnar Einarsdóttur.  Árið 1905 fór Ragnar suður í N. Dakota, keypti þar land og hreinsaði. Seldi það svo og flutti í Brownbyggð þar sem hann keypti land, vann það fáein ár, seldi svo og keypti annað í sömu byggð. Bjó þar alla tíð.

Aftari röð Grace, fyrir aftan föður sinn, Albert, Joe, Sigurður (Siggi), Ragnar og Lára (Laura). Fyrir framan Ragnar Sigurður, Bill, Jón (John) og Anna Sigurbjörg. Mynd 1940 O1-6H