Salóme Ólafsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1885. Dáin í Morden, Manitoba árið 1976.
Maki: 5. apríl, 1917 Jón Ragnar Gillis f. 1884 í Akrabyggð í N. Dakota, d. í Morden árið 1970.
Börn: 1. Olive f. 1917 2. Árni f. 1918 3. Óskar (Oscar) f. 1920 4. Franklin f. 1922 5. John f. 1925 6. Sigríður (Sigga) f. 1926 7. Ragnar f. 1928.
Salóme fór vestur árið 1887 með foreldrum sínum, Ólafi Árnasyni og Ragnheiði Ósk Sigurðardóttur. Þau settust að í N. Dakota og bjuggu þar til ársins 1899. Þá fluttu þau í Brownbyggð í Manitoba. Þar vann Salóme við eldamensku hjá bændum og seinna á hóteli í Morden. Jón Ragnar kom með afa sínum, Sigfúsi Gíslasyni og ömmu sinni, Rannveigur Árnadóttur frá Akrabyggð í N. Dakota til Brownbyggðar árið 1899. Þar vann Jón með afa sínum og sonum hans við bústörf. Salóme og Jón bjuggu á eigin landi til ársins 1962, flutt þá til Morden.

Standandi frá hægri Franklin, Oscar, Árni og John. Neðri röð: Olive, Jón Ragnar, Ragnar, Salóme og Sigga. Mynd 1942 O1-6H
