ID: 7093
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1930
Stefán Ólafur Stefánsson: Fæddur í Skagafjarðarsýslu árið 1856. Dáinn 1930
Maki: 1) Hallfríður Gunnarsdóttir f. í Skagafjarðarsýslu árið 1853. Dáin 1893. 2) Anna Sæmundsson
Börn: Með Hallfríði: 1. Guðmundur f. 5. mars 1880 2. Súsanna. Með Önnu: 1. Daníel 2. Salome 3. Harold 4. Lárus
Stefán fór vestur árið 1882 og bjuggu þau fyrstu tvö árin í Winnipeg. Tók land í Argylebyggð 1884 en fór þaðan 1892. Flutti til Winnipeg en Hallfríður var orðin veik og fór ekki. Hún dó á landi þeirra. Stefán vann við trésmíðar í Winnipeg, Selkirk og Edmonton. Fór til Graham Island árið 1911 en undi ekki þar. Þaðan til Edmonton og þar dó hann.
