Árni Árnason fæddist árið 1839 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Brownbyggð í Mnitoba árið 1902.
Maki: 1875 Valgerður Pétursdóttir f. í Skagafjarðarsýslu árið 1857.
Börn: 1. Sigríður f. 1875 2. Margrét f. 1877 3. Árni Stefán f. 1882 4. Guðrún Sigurlína (Lena Westburg) f. í Akrabyggð í N. D. 1889 5. Rannveig Petrína (Rena Erickson) f. í Akrabyggð 1895.
Árni flutti með fjölskylduna vestur árið 1883 og settist að í Akrabyggð í N.D. Samferða fjölskyldunni var móðir Valgerðar, Margrét Sveinbjarnardóttir. Þau fluttu norður í Brownbyggð árið 1899 og þar lést Árni, fyrsti Íslendingurinn grafinn í íslenska kirkjugarði byggðarinnar. Valgerður og Árni, sonur hennar, fluttu til Saskatchewan árið 1923 en þá voru Guðrún Sigurlína og Rannveig Petrína giftar kanadískum mönnum og sestar að í Archerville. Þangað fóru mæðgin.
