Þórunn Magnúsdóttir

ID: 7137
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1933

Þórunn Elísabet Magnúsdóttir fæddist 17. desember, 1853 í Skagafjarðarsýslu. Dáin í Saskatchewan 15. desember, 1933.

Maki: 1) Jón Þorsteinsson dó á Íslandi 2) 1885 Bjarni Jónasson f.21. júlí, 1848, d. 23. nóvember, 1930.

Börn: Með Jóni 1. Rut f. 1881 2) Magnús f. 1883. Með Bjarna 1. Sigurlaug f. 29. október, 1886 2.  Rannveig Ingibjörg (Emma) f. 13. apríl, 1888 3. Rut Halldóra f. 15. júlí, 1889, d. 1890 4. Sigurjóna f. 1. maí, 1892 5. Konráð Jónas f. 1896, d. 1897.

Þórunn flutti vestur til Winnipeg í Manitoba, ekkja með börn sín tvö, Rut og Magnús árið 1885. Giftist Bjarna sama ár og flutti í Hallsonbyggð í N. Dakota. Árið 1911 fluttu þau til Gull Lake í Saskatchewan þar sem þau bjuggu fáin ár. Fluttu þaðan til Selkirk í Manitoba en dvöldu lengstum hjá börnum sínum í Saskatchean.