Guðrún Jóhannesdóttir

ID: 7231
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1928

Guðrún Guðlaug Jóhannesdóttir fæddist 13. júní, 1866 í Skagafjarðarsýslu. Dáin 25. nóvember, 1928 í Mouse River byggð.

Maki: 1896 Rögnvaldur Gísli Pétursson fæddist 23. október, 1873 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn á Borg á Mountain í N. Dakota 16. nóvember, 1961. Hillman vestra.

Börn: 1. Anna Guðríður f. 15. júní, 1897 2. Ólafía (Olive) Helga f. 13. apríl, 1900 3. Jón Pétur (John Peter) f. 16. desember, 1901 4. Jóhannes Steinn f. 6. október, 1903 5. Leó Samson f. 24. maí, 1906 6. María (Marie) Valgerður f. 1909  7. Sigrún Valentína f. 1912.

Guðrún Guðlaug var dóttir Jóhannesar Magnússonar og Steinunnar Jónsdóttur flutti með þeim vestur árið 1888. Rögnvaldur flutti vestur til Ontario árið 1874 með foreldrum sínum, Pétri Jónssyni og Ólöfu Kjartansdóttur. Þau fóru austur í Markland í Nova Scotia og bjuggu þar til ársins 1881. Þá fluttu þau í Akrabyggð í N. Dakota þar sem Rögnvaldur ólst upp. Þar kynntist hann Guðrúnu og kvæntist þar. Þau fluttu í Mouse River byggðina árið 1898.