Einar Brynjólfsson

ID: 7273
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Einar Brynjólfsson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1863. Dáinn í Portland í Oregon árið 1933. Oddson vestra.

Maki: 1) Jóhanna, upplýsingar vantar. Þau skildu. 2) Ingibjörg Björnsdóttir f. í Skagafjarðarsýslu 19. júní, 1865, d. 21. apríl, 1958 í Oregon í Bandaríkjunum.

Börn: 1. Ófeigur f. um 1900 2. Chester f. 14. október, 1900, d. 1973 3. Egill f. 7. mars, 1903, d. 1. janúar, 1893 í Kaliforníu 4. Framar f. 13. apríl, 1904 5. Rósa L. f. 25. febrúar, 1905 6. Elmar Hjálmar (Hjalmer) f. 17. mars, 1906 7. Ágústa (Augusta) Alice f. 26. ágúst, 1908, d. 15. apríl, 1988 í Longview, Washington. Öll voru framannefnd börn fædd í Bonners Ferry, Idaho. 8. Lillian f. 10. febrúar, 1910 í Moscow, Idaho.  Ingibjörg átti allmörg börn vestra með fyrri manni, Siggeiri Jóhannssyni, sjá hana.

Einar var sonur Brynjólfs Oddssonar og Valgerðar Rafnsdóttur. Einar flutti vestur til Winnipeg árið 1887 en ári seinna fóru Ingibjörg og Siggeir. Einar fór vestur til Alberta árið 1889 og mun hafa numið þar land 1890. Í stað þess að hefja búskap vann Einar um skeið hjá sauðfjárbændum í sunnanverðu fylkinu. Eftir einhver ár fór hann á land sitt nærri Tindastól og þar hóf hann búskap og kvæntist fyrri konu sinni. Hann og Ingibjörg fluttu saman brott úr byggðinni vestur til Rossland í Bresku Kólumbíu og þaðan um aldamót til Idaho í Bandaríkjunum.