Guðrún Torfadóttir

ID: 20242
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Guðrún Torfadóttir fæddist í N. Múlasýslu 17. mars, 1865.

Maki: 1) Sigurður Jónsson Scheving, þau skildu 2) 1894 Hreggviður Sigurðsson fæddist árið 1864 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Lundar 1934.

Börn: Með Sigurði 1. Stefán Herbert f. 5. maí, 1893 Með Hreggviði 1. Henry Raymond f. 1894 2. Kristín Hilda f. 14. maí, 1896 3. Sigurður f. 1899 4. Elín f. 1903.

Guðrún flutti vestur um 1892. Hún fór með son sinn til N. Dakota og  gerðist þar vinnukona áður en hún kynntist Hreggviði. Hreggviður flutti til Vesturheims árið 1876, með systkinum sínum og móður sinni, ekkjunni Kristínu Jónatansdóttur. Þau voru í Nýja Íslandi fyrstu árin en fluttu seinna í N. Dakota.  Þar bjó Hreggviður með konu sinni og börnum til ársins 1926, flutti þá til Lundar í Manitoba.