Anna Jóhannsdóttir

ID: 7447
Fæðingarár : 1832
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Anna Jóhannsdóttir fæddist árið 1832 í Blönduhlíð í Skagafjarðarsýslu.

Maki: Jóhannes Pétursson f. árið 1843 í Skagafjarðarsýslu, d. 11. október, 1908 á Íslandi.

Börn: Sigrún f. 6.júní, 1867 2. Guðrún f. 1871 3. Jóhanna f. 1875. 4. Jónas f. 1882. Fóstursonur Jóhannesar hét Valdimar Þorláksson, sonur Þorláks Péturssonar sem vestur fór árið 1873 .

Jóhannes fór vestur með börnin 4 árið 1882. Anna fór ári seinna. Þau fóru til Minnesota og settust að í Lincolnbyggð. Jóhannes fór til Íslands árið 1907 en átti þaðan ekki afturkvæmt. Hann dó í Reykjavík.

Dóttir Önnu af fyrra hjónabandi var Arnfríður Soffía Ásmundsdóttir, f. c1853. Hún flutti til Vesturheims árið 1882.