
Jóhann og Valgerður árið 1918 Mynd RbQ
Jóhann Gunnlaugur Stefánsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 8. ágúst, 1871. Dáinn í Selkirk í Manitoba árið 1947.
Maki: Valgerður Hallgrímsdóttir fæddist árið 1882 í Árnessýslu, d. 1950 í Selkirk.
Börn: Barnlaus en fóstruðu 1. Edward f. 30. október, 1904 í Selkirk 2. Vala f. 13. nóvember, 1910 í Árnesbyggð.
Jóhann fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum árið 1883. Þau settust að í Ísafoldarbyggð í Nýja Íslandi. Jóhann vann í 13 ár við fiskveiðar, ýmist á Winnipegvatni eða norður í Winnipegosis. Hann keypti land nærri Selkirk og flutti á það árið 1901. Þaðan lá leiðin í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1907 en landið nam hann árið 1905. Valgerður flutti með sínum foreldrum, Hallgrími Guðmundssyni og Þóreyju Guðmundsdóttur til Bandaríkjanna árið 1888 og komu fyrst til New York. Þaðan fór fjölskyldan til Duluth og þar fæddist systir hennar, Jónína 23. ágúst, 1891. Þau fluttu til Selkirk í Manitoba árið 1893 og bjuggu þar.
