ID: 1868
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Þorkell Magnússon fæddist í Gullbringusýslu 12. ágúst árið 1866.
Maki: 1914 Salóme Pálína Þorsteinsdóttir f. í Mýrasýslu 5. október, 1867.
Barnlaus.
Þorkell fór vestur með móður sinni, ekkjunni Vigdísi Guðmundsdóttir og systkinum sínum árið 1887. Þau fóru til Nýja Íslands þar sem Þorkell vann við fiskveiðar. Hann flutti árið 1891 til Keewatin í Ontario þar sem hann stundaði fiskveiðar í 12 ár. Þá gekk hann í félag með Jóni Pálmasyni og vann við sögunarmillu hans. Þorkell seldi svo Jóni sinn hlut árið 1915. Salóme fór vestur árið 1892, bjó fyrst í Winnipeg en flutti þaðan til Keewatin með fyrri manni sinum, Þorgrími Thorgrímsen.
