ID: 7895
Fæðingarár : 1884
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1964

Svanbjörg Gunnarsdóttir Mynd A Century Unfolds
Svanbjörg Gunnarsdóttir fæddist árið 1884 í Skagafjarðarsýslu. Dáin árið 1964 í Árdalsbyggð. Svana vestra
Maki: Kristján Jónsson fæddist 1882 í S. Múlasýslu. Dáinn 1940. Skrifaður Sveinson vestra.
Börn: 1. Kristján Vilber f. 1910 2. Brynjólfur Locke f. 1912 3. Allan Roy f. 1913 4. Jóhanna Guðlaug f. 1915 5. James Irvin 6. Evelyn Mae f. 1922 7. Doris Olafia f. 1923.
Svanbjörg fór vestur árið 1900 með foreldrum sínum, Gunnari Guðmundssyni og Veroniku Eiríksdóttur. Þau settust að í Árdalsbyggð. Kristján fór vestur með foreldrum sínum, Jóni Sveinssyni og Jóhönnu Jóhannesdóttur árið 1887. Þau tóku land í Geysirbyggð og þar ólst Kristján upp. Svanbjörg og Kristján bjuggu í Árdalsbyggð.
