Rósamunda Gunnarsdóttir

ID: 7896
Fæðingarár : 1889
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1962

Guðrún Rósamunda Gunnarsdóttir (Rósa) fæddist 4. febrúar,1889 í Skagafjarðarsýslu. Dáin árið 1962 í Riverton.

Maki: Jón Þorsteinsson f. í Dalasýslu 1. september, 1877, d. 17. september, 1939 í Manitoba.

Börn: 1. Gunnsteinn Valdimar f. 27. mars, 1909 2. Kjartan Sveinn f. 17. júní, 1910 3. Kristján Guðmundur f. 1. júlí, 1911 4. Jóhann Karl f. 23. maí, 1913..

Rósa var dóttir Gunnars Guðmundssonar landnema í Framnesbyggð sem vestur fór með fjölskylduna árið 1900. Jón fór vestur með foreldrum sínum árið 1878 og ólst upp í Mikley. Hann flutti með móður sinni til Keewatin í Ontario eftir lát föður síns 1897 og eftir nokkurra ára búsetu þar nam hann land í Árdalsbyggð árið 1902. Jón og Rósa bjuggu þar til ársins 1914, fóru þá út í Mikley og eftir einhvern tíma þar sneru þau aftur í Árdalsbyggð. Þau fluttu til Selkirk, þaðan til Keewatin og loks til Riverton árið 1932.