Jósep Ólafsson

ID: 8017
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1892

Jósef Ólafsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1852. Dáinn 1892 í Saskatchewan. Olson vestra.

Maki: 1883 Margrét Kristjánsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1856. Hún var dóttir Kristjáns Arngrímssonar.

Börn: 1. Alexander Óskar 2. Victor Emanúel.

Jósef fór vestur til Ontario í Kanada árið 1873 og var þar fyrsta veturinn. Fór þaðan til Milwaukee árið 1874 og dvaldi hér og hvar í Wisconsin til ársins 1880 en þá flutti hann til Winnipeg í Kanada. Hann rak kjötverslun í bænum einhver ár en nam land í Þingvallabyggð í Saskatchewan árið 1888. Margrét fór vestur með móður sinni, ekkjunni, Önnu Sigríði Guðmundsdóttur og fjórum systkinum vestur til Nýja Íslands árið 1876.