Sigríður Halldórsdóttir fæddist 25. apríl, 1864 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin 13. maí, 1934 í Duluth.
Maki: 1885 Páll Bergsson fæddist 18. febrúar, 1858 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn á Íslandi 28. apríl, 1920. Þau skildu.
Börn: Með Sigríði 1. Sigríður f. 1886, d. 1890 í Winnipeg 2. Guðrún Margrét f. 26. janúar, 1889, d. 1890 í Winnipeg 3. Gunnlaugur f. 26. janúar, 1889 4. Axel f. 1890, d. 1890 5. Axel Francis f. 23. mars, 1892 6. Laufey Jeanette f. 25. júní, 1894, d. 1. mars, 1987 7. Snæbjörn f. 15. nóvember, 1896 8. Skúli f. 25. ágúst, 1904.
Þau fluttu vestur til Winnipeg árið 1887 og bjuggu þar til ársins 1891. Það ár fluttu þau suður til Duluth í Minnesota þar sem Páll rak mjólkurbú. Hann flutti heim til Íslands árið 1908 og bjó í Reykjavík. Sigríður hélt rekstri mjólkubúsins áfram með aðstoð sona sinna.
