Sigríður G Eggertsdóttir

ID: 8087
Fæðingarár : 1901
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Sigríður G Eggertsdóttir Mynd VÍÆ IV

Sigríður Guðlaug Eggertsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 26. nóvember, 1901. Peterson vestra

Maki: 25. júní, 1932 Sveinbjörn Þorsteinsson f. í Winnipeg 29. júlí, 1906. Peterson vestra.

Börn: 1. Sveinbjörn Eggert f. 25. febrúar, 1933 2. Davíð Ágúst (August) Þorsteinn (Thorsteinn) f. 15. september, 1934.

Sigríður var dóttir Eggert Sigurgeirssonar og Svanhildar Sigurbjörnsdóttur, sem vestur fluttu til Manitoba árið 1906. Þau settust að í Siglunesbyggð þar sem Sigríður ólst upp og gekk í barnaskóla. Hún fór í meira nám í Winnipeg, byrjaði þar í Mulvey School og lauk svo seinna kennaraprófi frá Manitobaháskóla.  Fór í framhaldsnám í Vancouver og lauk B. Ed. prófi frá University of Bristish Columbia árið 1960. Sigríður kenndi ensku og sögu í ýmsum miðskólum í Manitoba þar til hún giftist. Sveinbjörn var stöðvarstjóri hjá C.N.R. járnbrautafélaginu víða í Kanada.