Sigurgeir Halldórsson fæddist 13. desember, 1850 í Þingeyjarsýslu. Dáinn á Gimli í Manitoba 1. apríl, 1902.
Maki: 9. október, 1886 Guðrún Sigurbjörg Jónatansdóttir f. 3. desember, 1853 í Þingeyjarsýslu, d. 7. ágúst, 1931
Börn: 1. Árni Ísfeld f. 27. maí, 1888, d. 29. mars, 1949 2. Kristinn Jóhannes (Joe) f. 24. desember, 1890, d. 9. maí, 1949 3. Soffanías f. 27. desember, 1892 á Gimli, d. 3. júlí, 1954 í Alberta 4. Gottskálk (Deorge) f. 17. júlí, 1896, d. 1975 5. Jónatan Eiríkur (John) f. 18. október, 1898, d. 25. september, 1956. Guðrún átti fyrir hjónaband: 1. Ólína Sigurbjörg Óladóttir f. 1. ágúst, 1874 2. Helgi Þorgrímsson f. 1876, d. 25. febrúar, 1966 3. Vilhjálmur Benediktsson f. 10. maí, 1879, fór ekki vestur 4. Valgerður Jónsdóttir f. c1886.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 með Árna, Valgerði og Ólínu. Óljóst með vesturför Helga, hann tók upp nafnið Harry Norman í Winnipeg þar sem hann fór í bakaranám. Flutti vestur til Seattle þar sem hann opnaði bakarí og nefndi það Normans Bakery. Fjölskyldan settist að í Gimli sýslu í Nýja Íslandi. Guðrún flutti vestur til Alberta árið 1914.
