ID: 8252
Fæðingarár : 1841
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Sigurbjörn Hallgrímsson, Anna Sigfúsdóttir og yngsta dóttir þeirra, Hallgríma Friðrika. Mynd FATV
Sigurbjörn Hallgrímsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 6. ágúst, 1841.
Maki: 27. september, 1865 Anna Sigfúsdóttir f.í Eyjafjarðarsýslu 10. apríl, 1842.
Börn: 1. Kristín f. 1866 2. Guðrún Helga f. 1869, 3. Hallgríma Friðrika. Tvö börn þeirra dóu í æsku.
Fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og voru þar fyrsta árið. Fluttu til Nýja Íslands árið 1875 og voru fyrst á Gimli. Fóru þaðan í Árnesbyggð þar sem þau voru fjögur ár. Þau færðu sig norður í Fljótsbyggð árið 1883 en voru þar aðeins eitt ár því 1884 eru þau sest að í Flatatungu í Árnesbyggð og bjuggu þar allar götur síðan.
