ID: 1930
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Dánarár : 1919

Gunnlaugur Helgason
Gunnlaugur Helgason fæddist 6. febrúar, 1859 í Gullbringusýslu. Dáinn í Nýja Íslandi 20. maí, 1919.
Maki: Jóhanna Helga Sigurðardóttir f. 26. mars, 1862 í Borgarfjarðarsýslu, d. 13. september, 1895.
Börn: 1. Helgi 2. Sigrún Ingibjörg f. í Árnesbyggð 5. maí, 1892, d. 4. febrúar, 1963 í Los Angeles.
Gunnlaugur fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1885 með móður sinni og bræðrum. Samferða var Jóhanna Helga, vinnukona hjá móður Gunnlaugs. Þau settust að í Árnesbyggð þar sem Gunnlaugur nam land og kallaði Jaðar.
