Axel Þorgeirsson

ID: 8383
Fæðingarár : 1883
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1973

Axel Þorgeirsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1883. Dáinn í Vatnabyggð árið 1973.  Alec Thorgeirsson vestra.

Ókvæntur og barnlaus.

Flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Þorgeiri Guðmundssyni og Sigríði Ólafsdóttur, og systkinum árið 1887. Hann var albróðir Ólafs S. Þorgeirssonar sem gaf út Almanakið í Winnipeg.

Axel nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan en seldi það og stundaði akstur í Kandahar og Dafoe þorpunum í sömu byggð.