Gunnlaugur Haraldsson

ID: 8582
Fæðingarár : 1884
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Gunnlaugur Haraldsson Mynd VÍÆ2

Vilfríður (Fríða) Haraldsdóttir Mynd VÍÆ2

Gunnlaugur Haraldsson: Fæddur í Eyjafjarðarsýslu 23. maí, 1884. Skrifaði sig Hólm vestra.

Maki: 25. október, 1908 Svanfríður Jakobsdóttir f. 20. janúar, 1885 í Eyjafjarðarsýslu.

Börn: 1. Ida f. 15. nóvember, 1909 2. Fanney f. 18. október, 1913 3. Svafa f. 9. febrúar, 1925 4. Garðar f. 30. nóvember, 1928.

Gunnlaugur fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1905, árið áður en foreldrar hans, Haraldur Sigurðsson Hólm og Helga Gunnlaugsdóttir. Svanfríður var dóttir Jakobs Sigurgeirssonar frá Grund í Eyjafirði sem vestur fór árið 1888 og dó í Mikley 1. ágúst, 1937.

Gunnlaugur fór með foreldrum sínum í Víðir- og Sandhæðabyggð árið 1905 og var þar bóndi til ársins 1946. Þá fluttu þau vestur að hafi og bjuggu í Stevenson í Bresku Kólumbíu í nokkur ár, voru eitthvað í Vancouver en enduðu á Betel í Gimli haustið 1963..