
Anna Jónsdóttir Mynd FaF
Anna Jónsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1853. Dáin í Geysirbyggð um 1933. Thordarson vestra
Maki: 1889 Sigurjón Þórðarson f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1867, d. í Nýhaga 1959.
Börn: 1. Þórey f. 1889 2. Ólafur Tryggvi f. 1893 3. Signý Rósbjörg f. í Geysirbyggð, d. 1944 4. Jóhannes f. 4. febrúar, 1897 í Geysirbyggð.
Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og fóru í Geysirbyggð þar sem Björg, systir Önnu og hennar maður bjuggu á Blómsturvöllum. Sigurjón nam svo land í byggðinni þremur árum seinna sama ár og nefndi Nýhaga. Lítið var um búskap fyrstu árin, fáeinar hænur og nokkrar kýr. Eftir 1910 stundaði Sigurjón veiðar á Winnipegvatni, fór út á vatn á haustin og sneri aftur um miðjan vetur. Smám saman vænkaðist hagur fjölskyldunnar, járnbraut var lögð til Árborgar og þá var hægt að koma skógafurðum í verð.
