
Dr. George Johnson Mynd VÍÆ II
George Johnson fæddist í Winnipeg 18. nóvember, 1920. Dáinn á Gimli í Nýja Íslandi 8. júlí, 1995. Dr.George Johnson vestra.
Maki: 31. desember, 1943 Doris Marjorie Blöndal f. 19. ágúst, 1921, d. 1996.
Börn: 1. Jonis Guðrún f. 21. apríl, 1946 2. Jennifer Ann f. 25. október, 1947 3. Daniel George f. 15. júlí, 1949 4. Jón Blöndal f. 19. nóvember, 1952 5. Joanne Margaret f. 19. október, 1956 6. Gillian Kristín f. 26. febrúar, 1963.
Dr. George var sonur Jónasar George Jónssonar og Laufeyjar Benediktsdóttur í Winnipeg. Þar gekk hann í grunnskóla og lauk prófi í læknisfræðum frá University of Manitoba í Winnipeg árið 1950. Hann var læknir á Gimli 1950 -1958, sneri sér þá að stjórnmálum og var kjörinn á Manitobaþing í Gimli kjördæði árið 1958. Hann var heilbrigðisráðherra Manitoba og menntamálaráðherra frá 1963. Doris var dóttir Dr. August Theodore Blöndal og Guðrúnar Stefánsdóttur í Winnipeg.