Jón Þórðarson

ID: 8760
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Jón Þórðarson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1854.

Maki: María Abrahamsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1855.

Börn: 1. Friðrika 2. Aðalbjörg 3. Jón f. á Gimli 23. janúar, 1884, d. í Bellingham 21. október, 1950.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og fóru til Nýja Íslands þar sem Jón andaðist stuttu eftir komuna vestur. María nam land í Víðirnesbyggð og nefndi það Kelduland, bjó þar fáein ár en flutti síðan til Selkirk. Mun hafa farið þaðan vestur að Kyrrahafi.