ID: 8775
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1937

Jón Sigfússon Thorlacius Mynd Almanak 1917
Jón Sigfússon fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1857. Dáinn 1937. Thorlacíus vestra
Maki: 1887 Guðrún Rósa Jóhannesdóttir f. 1861 í Eyjafjarðarsýslu.
Börn: 1. Bjarni J f. 1891 2. Sigfús Daníel f. 1898.
Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889 og þaðan áfram til Churchbridge í Þingvallabyggð í Saskatchewan þar sem hann vann við verslunarstörf. Flutti þaðan tveimur árum seinna í bæinn Yorkton og loks til White Sands um aldamótin. Þau fluttu í Vatnabyggð árið 1903 og námu land. Árið 1904 var pósthús opnað á landi Jóns og var það kallað Kristnes. Jón var pósmeistari í allmörg ár. Byggðin þar um kring var kölluð Kristnesbyggð.
