Jóhann Jónsson

ID: 8815
Fæðingarár : 1851
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1923

Jóhann Vilhjálmur Jónsson Mynd VÍÆ III

Jóhann Vilhjálmur Jónsson fæddist 6. febrúar, 1851 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn 18. mars, 1923 í Víðirnesbyggð.

Maki: 15. maí, 1874 Sigríður Ólafsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1848, d. 23. maí, 1932.

Börn: 1. Hólmfríður f. 1871 2. Jón Ólafur f. 9. nóvember, 1875 í tjaldi á Víðirnesi í Nýja Íslandi 3. Sigurpálmi 4. María.

Jóhann flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og dvaldi í Kinmount fyrsta veturinn. Flutti þaðan til Nýja Íslands ári síðar og nam land í Víðirnesbyggð suður af Gimli og nefndi Bólstað. Þar bjó hann í 27 ár en færði sig svo til í byggðinni árið 1903, nam land nokkuð vestra og nefndi Breiðabólstað.