Jón Jónsson fæddist að Munkaþverá í Eyjafjarðarsýslu 9. október, 1852. Dáinn 21. desember, 1945.
Maki: 19. júlí, 1877 Guðný Eiríksdóttir f. 19. janúar, 1844 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 7. september, 1923 í Blaine.
Börn: 1. Anna f. 7. janúar, 1879 2. Jón Frímann f. 24. október, 1884
Jón flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1875. Vann þar í Gravenhurst einhvern tíma en hélt þaðan suður til Milwaukee. Slóst seinna um haustið í för með fyrstu landnemunum á leið til Nýja Íslands. Þar nam hann land í Víðirnesbyggð og nefndi Akur. Flutti til Winnipeg með konu og dóttur árið 1879 og vann við húsasmíðar fyrsta veturinn. Flutti til Pembina í N. Dakota haustið 1880, nam þar land og byggði sér hús. Hann seldi það og flutti vestar í byggðina. Flutti þaðan suður til Grand Forks árið 1891 og árið 1904 í Vatnabyggð í Saskatchewan þar sem hann bjó til ársins 1910. Þá lá leiðin vestur til Vancouver þar sem hann bjó í tvö ár, færði sig suður til Blaine í Washington árið 1912 og bjó þar til ársins 1930. Heimsótti Ísland það ár, hafði reyndar farið þangað líka árið 1909.
