Kristján Hallgrímsson

ID: 8862
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1938

Kristján Hallgrímsson fæddist árið 1864 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn árið 1938 í Seattle. Kristjan H. Gislason vestra.

Maki: 1885 Hallfríður Hallgrímsdóttir fæddist 26. desember, 1860 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin í Seattle 5. nóvember, 1930.

Börn: 1. Hallgrímur 2. Gunnar 3. Garðar 4. Jónatan Emil. Hallfríður átti son, Magnús með fyrri manni sínum.

Hallfríður Hallgrímsdóttir flutti vestur um haf með Magnús árið 1883. Kristján fór vestur til Wisconsin með foreldrum sínum, Hallgrími Gíslasyni og Herdísi Jónsdóttur og systkinum árið 1873. Þau settust að í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1880 og þangað kom Hallfríður árið 1883. Hún og Kristján hófu þar búskap en 1894 fluttu þau í þorpið og ráku þar hótel til ársins 1901. Fluttu þá vestur til Seattle þar sem Kristján vann við trésmíðar. Heilsu Hallfríðar hrakaði og í mörg ár var hún heilsulítil.