Eiríkur Hjálmarsson

ID: 8869
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1925

Eiríkur Hjálmarsson Mynd SÍND

Ingibjörg Pétursdóttir Mynd SÍND

Eiríkur Hjálmarsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 15. apríl, 1852. Dáinn í N. Dakota 11. desember, 1925. Bergmann vestra.

Maki: Ingibjörg Pétursdóttir fæddist árið 1854 í Eyjafjarðarsýslu, d. 27. mars, 1920.

Börn: 1. Friðrik Pétur f. 9. ágúst, 1879 2.  Hjálmar Ágúst f. 22. ágúst, 1881 3. Kristín f. 29. mars, 1883, d. 1951.

Eiríkur fór vestur árið 1874 til Milwaukee í Wisconsin. Hann var þar til ársins 1876 en þá nam hann land í Lyonbyggð í Minnesota. Árið 1878 fór hann svo vestur í Garðarbyggð í N. Dakota. Ingibjörg fór vestur með foreldrum sínum sama ár og á sama skipi og Eiríkur. Foreldrar hennar, Pétur Hallgrímsson Thorlacius og Kristín Ólafsdóttir fóru líka til Milwaukee.