Rósa Jónasdóttir

ID: 8895
Fæðingarár : 1882
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1973

Ólafur Guðmundsson Mynd RbQ

Rósa Jónasdóttir Mynd RbQ

Rósa Jónasdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 23. maí, 1882. Dáin í Saskatchewan 18. febrúar, 1973.

Maki: 26. október, 1900 Ólafur Guðmundsson f. í Skagafjarðarsýslu 14. nóvember, 1865, d. 1. júní, 1921.

Börn: 1. Bogi f. 15. október, 1901, d. 2. mars, 1955 2. Sigríður f. 30. ágúst, 1903 3. Friðrik f. 16. nóvember, 1905, d. 29. maí, 1940 4. Ólöf f. 20. janúar, 1908 5. Lilja f. 10. september, 1908, d. 14. júlí, 1944 6. Helen f. 26. nóvember, 1910 7. Pétur f. 13. mars, 1913 8. Aðalheiður Grace f. 10. mars, 1915 9. Helgi Lincoln f. 2. maí, 1921.

Rósa fór vestur til N. Dakota með móður sinni, Sigríði Árnadóttur árið 1882, þær settust að í Garðarbyggð. Ólafur fór vestur til Nýja Íslands með foreldrum sínum, Guðmundi Péturssyni og Þorbjörgu Finnbogadóttur. Þau fluttu til N. Dakota árið 1882 og námu land norðvestur af Mountain. Ólafur og Rósa fluttu vestur til Markerville í Alberta árið 1900 en fluttu þaðan árið 1910 og námu land í Vatnabyggð í Saskatchewan.