
Jónas A Melan Mynd VÍÆ III
Jónas Aylwin Melan fæddist 11. september, 1927 í Nýja Íslandi.
Maki: 26. maí 1951 Lillian Sigríður Byron f. í Lundar 14. janúar, 1929.
Börn: 1. Eyjólfur f. 24. apríl, 1952 2. Kári Alexander f.28, október, 1953 3. Jónas Harold f. 12. janúar, 1955 4. Claire Olafia f. 24. október, 1958.
Jónas var sonur séra Eyjólfs Jónssonar, prests í Nýja Íslandi og konu hans Ólafíu Jónínu Jónsdóttur Jónassonar, kaupmanns á Gimli. Jónas stundaði nám í Manitobaháskóla en gerðist svo trésmiður og vann við það í Huntington í Bresku Kólumbíu. Lillian var dóttir Kára Stefánssonar og Önnu Mýrdal í Lundar. Þar lauk hún grunnskólanámi, fór til Winnipeg í framhaldsnám og lauk B. Sc. prófi í Home Economic í University of Manitoba. Þá tók við kennsla, hún kenndi í sex ár í Abbotsford í Bresku Kólumbíu.
