Veroníka Þorkelsdóttir

ID: 9185
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1912

Veroníka Ragnheiður Þorkelsdóttir Mynd VÍÆ IV

Veroníka Ragnheiður Þorkelsdóttir fæddist 29. desember, 1849 í S. Þingeyjasýslu. Dáin 4. apríl, 1912 í Vatnabyggð í Saskatchewan.

Maki: 5. ágúst, 1876 Sveinn Kristjánsson f. 15. september, 1836 í S. Þingeyjarsýslu, d. 7. apríl, 1918 í Saskatchewan.

Börn:  1. Solveig f. 20. janúar, 1877 2. Rögnvaldur f. 16. júlí, 1879 3. Óttar f. 7. desember, 1880, d. 23. september, 1963 4. Jóhann Svanberg f. 17. janúar, 1885, d. 1958 5. Kristján f. 17. febrúar, 1886, d. sama ár. 6. Þorkell (Kelly) f. 17. mars, 1887 7. Kristjana Rakel f. 18. maí, 1888 8. Hólmfríður (Fríða) f. 18. mars, 1890 9. Jón Halldór f. 9. mars, 1893 10. Vernharður f. 11. mars, 1894, d. 13. maí, 1930 11. Ástríður Björg f. 1894, d. 1964.

Sveinn og Veroníka fluttu vestur um haf árið 1883 til Winnipeg í Manitoba og settust að í Nýja Íslandi. Fluttu vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905 og námu land austur af Wynyard.