Helgi Ásmundur Sveinsson fæddist 10. nóvember, 1870 í Bárðardal í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Lundarbyggð árið 1944.
Maki: 1) Kristín Jónsdóttir f. 6. maí, 1875 í Mýrasýslu, d. 30. nóvember, 1905 2) Ljótunn Guðmundsdóttir f. 1889 í Borgarfjarðarsýslu, d. 1955.
Börn: Með Kristínu: 1. Allantir Þorbergur f. 21. ágúst, 1898 2. Percival Norman f. 28. september, 1901 3. Edward Lauriel f. 30. október, 1904 4. Kristvin f. 24. nóvember, 1905.
Helgi flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 með föður sínum og stjúpmóður og systkinum. Hann gekk menntaveginn og varð vélstjóri. Bjó í Minnesota um hríð og vann í Argentínu. Flutti þaðan aftur til Kanada og settist að í Lundar. Bjó þar alla tíð. Kristín fór vestur með sínum foreldrum, Jóni Jónssyni og Sigríði Jónsdóttur sem settust að í Mikley árið 1878. Ljótunn fór vestur árið 1900 til Manitoba með sínum foreldrum, Guðmundi Torfasyni og Guðrúnu Þorsteinsdóttur.
