Vigfús Sigurðsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 10. september, 1827. Dáinn í N. Dakota 8. ágúst, 1903.
Maki: 1861 Guðrún Jónsdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1834.
Börn: 1. Guðrún f. 1864 2. Sigurður f. 1866, d. í Thingvallabyggð 1882 3. Guðjón f. 1872, d. í Nýja Íslandi veturinn 1875 – 1876.
Vigfús flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1873 og var í íslensku byggðinni í Rosseau og svo í Parry Sound. Hann fór til Nýja Íslands árið 1875, nam land sem hann kallaði Vigur í Árnesbyggð rétt suður af Gimli. Fyrsta veturinn höfðust þau við í tjöldum og misstu Guðjón úr þeirri vosbúð. Þau flutt þaðan til Winnipeg þar sem þau voru um hríð áður en þau fóru suður til N. Dakota árið 1880. Þau námu land í Thingvallabyggð nokkrum kílómetrum suðvestur af Mountain.
