Ása Guðmundsdóttir

ID: 20661

Ása Guðmundsdóttir Mynd VÍÆ IV

Ása Guðmundsdóttir fæddist í Árnessýslu 12. apríl, 1892. Dáin í Trinidad 6. febrúar, 1971.Wright í hjónabandi.

Maki: 1918 Henry Newcombe Wright lögfræðingur, enskur uppruni.

Barnlaus.

Á yngri árum stundaði Ása nám í skóla í Englandi. Henry kom til Íslands árið 1914 til rannsókna og þar bjó sig undir að verja doktorsritgerð. Árið 1945 fluttu þau til Vestur Indía og bjuggu í Spring Hill Estate, skammt frá höfuðborg Trinidads. Árið 1968 gaf hún Vísindafélagi Íslendinga háa upphæð til að efla vísindastörf þar. Má taka fram að Dr. Sigurður Nordal þáði fyrsta styrkinn úr sjóðnum.