ID: 9333
Fæðingarár : 1887
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Hermann Kristjánsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1887. Ísfeld vestra.
Maki: Björg Sigríður Jósepsdóttir f. í Garðarbyggð í N. Dakota
Flutti árið 1888 með foreldrum sínum ársgamall til Winnipeg í Manitoba. Þau settust að í Argylebyggð og þar ólst Hermann upp. Ungur að árum nam hann land í Vatnabyggð í Saskatchewan. Það var í Kandahar/Dafoe byggð. Seldi landið seinna og keypti land í Argylebyggð í Manitoba. Bjó seinna í Cypress River. Björg var dóttir Jóseps Sigvaldasonar og Ingibjargar Sigurðardóttur landnema í Garðarbyggð í N. Dakota.
