
Stephan G Stephansson Mynd SÍND

Hluti landnáms Stephans G. Stephanssonar í Shawano í Wisconsin. Mynd JÞ
Stefán Guðmundsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 3. október, 1853. Dáinn í Alberta 9. ágúst, 1927. Stephan G. Stephansson vestra frá og með 1884.
Maki: 28. ágúst, 1878 Helga Sigríður Jónsdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu 3. júlí,1859, d. 12. desember, 1940.
Börn: 1. Baldur f. 25. september, 1879, d. 13. júní, 1949 2. Guðmundur f. 9. desember, 1881, d. 4. mars, 1947 3. Jón f. 1884 í Garðar, d. 27. október, 1887 4. Stephaný Guðbjörg f. 6. október, 1889, d. 17. desember, 1940 5. Jóný Sigurbjörg f. 6. október, 1889 6. Gestur Cecil f. 31. maí, 1893, d. 16. júlí, 1909.
Stefán flutti vestur til Wisconsin árið 1873 og settist að í Stoughton í Dane sýslu. Nam land í Shawano sýslu haustið 1874 og fór þaðan vestur í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1880. Flutti þaðan vestur til Alberta og nam land stutt frá Markerville.

Hjúskaparvottorð sem séra Páll Þorláksson gaf út í nýlendunni í Shawano en hann gaf þau saman. Hafði farið frá Nýja Íslandi suður í Dakota, þar sem hann stofnaði íslenska nýlendu. Yfirgaf þar félaga sína og fór austur til Wisconsin en þar biðu hans ýmis prestverk, hjónavígslur og skírnir.
